Björgunarsveitir heimsækja Suðurlandið

Björgunarsveitirnar á Hvammstanga, Blönduósi og Skagaströnd tóku forskot á sæluna og fóru í 1. maí-ferð sína á laugardaginn 30. apríl. Heimsóttar voru sveitir á suðurlandi í þetta skiptið og var byrjað í Hveragerði hjá hjálparsveit Skáta.

Litið var í heimsóknir til Hjálparsveitar Skáta í Hveragerði, Björgunarfélags Árborgar á Selfossi, Björgunarsveitarinnar Bjargar á Eyrarbakka, Björgunarsveitarinnar Mannbjargar í Þorlákshöfn og loks var svo litið inn hjá Boga í Sjósport áður en haldið var aftur heim á leið eftir góðan dag.

-Þessar ferðir eru bæði fræðandi og einnig kynnumst við félögum öðrum björgunarsveitum og sjáum hvernig þeir leysa úr hlutunum, segir á heimasíðu Björgunarsveitarinnar Húna í V-Húnavatnssýslu.

Myndir úr ferðinni er hægt að sjá á myndasíðu Húna HÉR.

Á heimasíðu Björgunarsveitarinnar Strandar á Skagaströnd ýtarleg lýsing af ferðinni og er hægt að nálgast hana HÉR.

Fleiri fréttir