Björgvin er tekinn til starfa
Nýr blaðamaður, Björgvin Gunnarsson, er tekinn til starfa hjá Feyki og mun vera hjá blaðinu í sumar. „Ég hlakka mjög til að takast á við verkefni sumarsins og vona að ég muni eiga góð samskipti við fólkið á Norðurlandi vestra,“ segir Björgvin.
Björgvin er Austfirðingur og hefur búið víða um land en undanfarin ár hefur hann verið búsettur á höfuðborgarsvæðinu. Hann er sonur Gunnars Finnssonar, skólastjóra og skákfrömuðar úr borginni og Ólafar Maríu Eiríksdóttur, húsfreyju í Fellabæ.
Björgvin er með BA-gráðu í fornleifafræði frá Háskóla Íslands og hefur jafnframt stundað nám í fjölmiðlafræði við sama skóla. Björgvin hefur áður starfað við ritstörf er hann stýrði vefmiðlinum Austurlandid.net sumarið 2007. Þá hefur hann einnig fengist við skapandi skrif en Björgvin er skáld og hefur gefið út fimm ljóðabækur.
Björgvin segir nánar frá sjálfum sér í leiðara Feykis sem kemur út næstkomandi miðvikudag.
Hann er með netfangið björgvin@feykir.is. Hægt er að ná í hann í síma 866 2066.