Björn Valur í varaformanninn
Björn Valur Gíslason ætlar að gefa kost á sér sem varaformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á landsfundi flokksins sem haldinn verður um næstu helgi. Þannig vill Björn Valur leggja áfram fram krafta sína í þágu þess málstaðar sem flokkurinn stendur fyrir.
-Ég hef tekið þátt í störfum flokksins frá stofnun hans og gegnt mörgum trúnaðarstörfum á hans vegum jafnt á sveitarstjórnarstiginu sem og á landsvísu. Frá því ég var kjörinn á þing vorið 2009 hefur þingflokkurinn falið mér að vera talsmaður sinn í efnahags- og fjármálum þjóðarinnar á Alþingi og takast þar á því þau gríðarlega þungu verkefni sem frjálshyggju tilraun áranna þar á undan skyldi eftir sig, segir Björn Valur í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum fyrr í dag.
Björn Valur hefur setið í fjárlaganefnd þingsins frá upphafi kjörtímabils, fyrst sem varaformaður og síðan sem formaður nefndarinnar. Þá hefur hann verið formaður samgöngunefndar þingsins á þessu tímabili og átt sæti í atvinnuveganefndum þess.
-Kjörtímabilið sem nú er að enda hefur fyrst og síðast snúið að því að reisa Ísland við eftir hrun fjármálakerfisins og um leið að skapa grunn að betra og réttlátara samfélagi er leiddi til hrunsins haustið 2008. Þar hefur margt tekist vel og gengið betur en á horfðist í fyrstu þó langt sé frá því að við sem þjóð séum laus undan öllum þeim erfiðleikum sem efnahagshrunið kallaði yfir okkur. Það eru mörg erfið verkefni framundan í íslensku samfélagi sem mikilvægt er að verði leyst á þeim grunni sem lagður hefur verið á síðustu fjórum árum, segir Björn Valur sem vill þakka þeim fjölmörgu aðilum sem hafa hvatt hann til að gefa kost á sér í embætti varaformanns.
-Allar forsendur eru fyrir því að Vinstri græn nái góðum árangri í komandi kosningum og vil ég leggja mitt að mörkum til þess að svo verði.