Björt framtíð fyrir íslenska neytendur?
Neytendasamtökin fagna breytingu á reglugerð þar sem dregið er úr innflutningshömlum á landbúnaðarvörur. Um þetta er skrifað á heimasíðu samtakana.
Nú er ferðamönnum heimilt að flytja til landsins allt að einu kílói af ógerilsneyddum osti og allt að þremur kílóum af hráu kjöti sé það frosið og prófað fyrir salmónellu. Ekki þarf að greiða aðflutningsgjöld vegna þessa né leggja fram vottorð vegna innflutnings á soðnum kjötvörum eins og áður var.
„Þetta er skref í rétta átt þótt ekki sé það stórt. Neytendasamtökin hvetja stjórnvöld til að ganga lengra og fella niður tolla af innfluttum ostum sem eru ekki framleiddir hér á landi. Slíkt væri fyrsta skrefið í átt að aukinni samkeppni á íslenskum búvörumarkaði,“ segir á heimasíðunni.
Neytendasamtökin minna á að mikið kapp er lagt á að flytja íslenskar afurðir út þannig að erlendir neytendur geti gætt sér á skyri og lambakjöti. Jafnframt að fréttir berast af því að framtíðin sé björt fyrir íslenska matvælaframleiðendur því margar kjötvinnslur hafa fengið vottun sem heimilar þeim að selja afurðir sínar í Evrópu.
„Á sama tíma ríkir furðuleg tregða gagnvart innfluttum vörum og hafa stjórnvöld í gegnum tíðina gert sér far um að bregða fæti fyrir allan innflutning með ofurtollum, höftum og útboðum á kvóta. Framtíðin er því ekki að sama skapi jafn björt fyrir íslenska neytendur,“ segir á heimasíðunni.
Þá telja Neytendasamtökin upp þau atriði sem þau leggja áherslu á:
1. Neytendasamtökin ítreka kröfu sína um heimilaður verði frjáls innflutningur á ostum sem ekki eru framleiddir hér á landi. Ekki verði lagðir tollar á þessar vörur eða kvótar boðnir út. Sjá erindi til ráðherra sem ekki hefur verið svarað.
2. Eðlilegt er að heimila innlenda framleiðslu á ógerilsneyddum ostum. Tryggja verður þó mjög strangt eftirlit með þessari framleiðslu.
3. Minnt er á að einokun er í framleiðslu á mjólkurvörum. Það er því eðlileg krafa að innflutningur verði aukinn til að tryggja samkeppni og bæta hag neytenda. Þetta verði gert með frjálsum innflutningi og verulegri lækkun eða afnámi tolla.
Heimild: http://www.ns.is.