Björt framtíð klárar framboðslista í norðvesturkjördæmi
Árni Múli Jónasson, lögfræðingur á Akranesi, mun leiða lista Bjartrar framtíðar í norðvesturkjördæmi en fullkláraðir framboðslistar voru lagðir fyrir stjórn Bjartrar framtíðar á fundi í gærkvöldi. Listarnir voru samþykktir með lófataki ásamt kosningastefnu BF sem verður kynnt síðar í vikunni.
Listi Bjartrar framtíðar í norðvesturkjördæmi lítur svona út:
1. Árni Múli Jónasson, lögfræðingur á Akranesi.
2. G. Valdimar Valdemarsson, framkvæmdastjóri og frístundabóndi í Borgarbyggð.
3. Solveig Thorlacius, tilraunabóndi á Kleifum við Blönduós.
4. Magnús Þór Jónsson, skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar.
5. Soffía Vagnsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Bolungarvíkur og meistaranemi í Menningarstjórnun og Evrópufræðum.
6. Haukur Logi Jóhannsson, háskólanemi að Bifröst.
7. Eva Símonardóttir, kennari í Borgarbyggð.
8. Erna Guðmundsdóttir, markþjálfi og meistaranemi frá Suðureyri.
9. Arnar Snæberg Jónsson, tómstundafulltrúi á Hólmavík.
10. Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir, kennari og verkefnastjóri á Akranesi.
11. Hlöðver Ingi Gunnarsson, deildarstjóri Varmalandsskóla í Borgarbyggð.
12. Svanberg J. Eyþórsson, öryggisfulltrúi hjá Elkem á Grundartanga.
13. Ágústa Þóra Jónsdóttir, líffræðingur og rekstarhagfræðingur frá Ísafirði.
14. Björn Kristjánsson, kennari og tónlistarmaður á Drangsnesi.
15. Anna Lára Steindal, forstöðumaður Rauða krossins á Akranesi.
16. Örn Elías Guðmundsson (Mugison), tónlistarmaður í Súðavík.