Blanda aflahæst

Blanda er aflahæsta laxveiðiá landsins í dag, samkvæmt veiðitölum á vef Landssambands veiðifélaga, angling.is. Nýjustu tölur á vefnum eru frá því á miðvikudag, 2. Júlí, og voru þá komnir 350 laxar úr Blöndu.

Af öðrum ám á Norðurlandi vestra má nefna að Miðfjarðará er í fjórða sæti með 124 laxa, Vatnsdalsá í sjötta sæti með 83 og Víðidalsá í því níunda með 45 laxa.

Fleiri fréttir