Blanda búin að fara í tuttugu útköll í dag

Björgunarfélagið Blanda í Austur-Húnavatnssýslu hefur það sem af er degi farið í um það bil tuttugu útköll vegna óveðurs, en flest þeirra voru á milli klukkkan 10:30 og 14:30. Þar af komu flest útköll á fyrstu tíu mínútunum.

Á milli kl 10 og 11 í morgun var vindhraði Blönduósi og nágrenni yfir 40 m/sek en fór niður í 30 m/sek um hádegi. Rúður voru að brotna, þakplötur að losna og fjúka ásamt öðru lauslegu. Voru útköllin bæði á Blönduósi og í sveitunum í kring, að sögn forsvarsmanna Björgunarsveitarinnar.

Meðfylgjandi myndir tók Róbert Daníel Jónsson

Fleiri fréttir