Blanda heldur 3. sætinu

Blanda er enn í þriðja sæti yfir aflahæstu laxveiðiár landsins í sumar, samkvæmt veiðivefnum angling.is. Þar var 731 lax kominn að landi í gær og vantar þá einungis hundrað laxa upp á heildarveiðina í fyrrasumar, sem voru 832 laxar. Miðfjarðaá er í 6. sæti með 331 lax.

Eftirfarandi ár á Norðurlandi vestra eru á lista yfir 75 aflahæstu ár landsins (miðað við 10. júlí):

Blanda 731 lax
Miðfjarðará 331
Vatnsdalsá 105
Laxá í Ásum 103
Víðidalsá 75
Hrútafjarðará og Síká 30
Fljótaá 12
Svartá í A-Hún 8

Fleiri fréttir