Blanda í öðru sæti
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
17.07.2015
kl. 10.05
Eins og greint var frá í Feyki í gær hefur veiðin í Blöndu verið góð að undanförnu og er áin nú í 2. sæti yfir aflahæstu ár landsins, samkvæmt veiðitölum sem uppfærðar voru á angling.is í gær.
Alls hafa veiðst 993 laxar í Blöndu það sem af er sumri. Miðfjarðará er í fjórða sæti með 649 laxa. Næst af ánum á Norðurlandi vestra kemur Víðidalsá með 192 og skipar hún 14. sæti á listanum, sem uppfærður er vikulega á vefnum angling.is.