Blanda komin í 5. sætið
Blanda er nú komin í fimmta sæti yfir aflahæstu laxveiðiár landsins, samkvæmt tölum á vefnum angling.is, eftir að hafa lengi í sumar verið í 3. sætinu. Engu að síður er veiðin í Blöndu 2229 laxar en aðeins þrisvar sinnum á tæpum fjörtíu árum hefur heildarveiði sumarsins verið meiri en það.
Árið 2010 var metsumar í Blöndu, þá veiddust 2777 laxar yfir sumarið og árið 2009 2413 laxar. Það var svo árið 1975 sem 2763 laxar komu úr ánni en veiðitölur á angling.is ná aftur til ársins 1974.
Miðfjarðará kemur fast á hæla Blöndu og er í sjötta sæti á landsvísu með 2226 laxa. Aðrar laxveiðiár á Norðurlandi vestra sem komast á blað yfir 75 aflahæstu ár landsins eru:
Laxá á Ásum með 753 laxa, Vatnsdalsá með 743 laxa, Víðidalsá með 519 laxa, Hrútafjarðará og Síká með 322 laxa, Svartá með 201 lax og Fljótaá með 156 laxa.
Allar ofangreindar tölur miðast við 14. ágúst.