Blanda komin yfir 1000 laxa
Veiðin í Blöndu er komin yfir 1000 laxa þetta árið og vermir áin annað sæti á lista Landssambands veiðifélaga yfir 75 aflahæstu laxveiðiár landsins. Samanlögð veiði í tíu aflahæstu ám landsins er rúmlega tvöfalt meiri en á sama tíma í fyrra.
Hér að neðan er listi yfir fjölda veiddra laxa í þeim ám á Norðurlandi vestra sem komast meðal 75 aflahæstu ánna í síðustu viku, en tölurnar miða við síðast liðinn miðvikudag. Hægra megin er svo heildarfjöldi veiddra laxa sumarið 2015, sem var víðast hvar gott veiðiár.
Blanda 1020 4829
Miðfjarðará 608 6028
Víðidalsá 251 1626
Vatnsdalsá 220 1297
Laxá á Ásum 116 1795
Hrútafj.&Síká 38 860
Svartá í Hún. 30 619
Fljótaá 21 142
(Heimild: angling.is)