Blautt og kalt framundan
Nú er úti veður vott, stendur einhversstaðar og á það vel við núna. Snjólínan færist neðar í fjöllin og eru sumstaðar komin niður á láglendi. Spáin hljóðar svo: Norðan 8-13 m/s og slydda eða snjókoma en hvessir í dag. NA 10-20 síðdegis, hvassast á Ströndum, en hægari til landsins. Slydda, en síðar rigning. Dregur úr vindi í fyrramálið, og úrkomu síðdegis. Hiti 1 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðan 8-15 m/s, hvassast austast. Rigning eða slydda á N- og A-landi og snjókoma til fjalla, en dregur úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn. Bjartviðri á S- og V-landi. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst.
Á föstudag:
Hæg breytileg átt og bjart veður, en norðvestanátt með lítilsháttar éljum við NA-ströndina og vaxandi suðaustanátt með rigningu SV-til um kvöldið. Víða næturfrost, en hiti 1 til 6 stig að deginum, þó sums staðar vægt frost N- og A-lands.
Á laugardag:
Hvassa sunnan- og suðvestanátt með rigningu, einkum S- og V-lands. Talsvert næturfrost N- og A-lands, en hiti 6 til 12 stig síðdegis.
Á sunnudag:
Útlit fyrir vestlæga átt með skúrum, en bjartviðri eystra. Hiti 3 til 9 stig.
Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir norðan- og norðvestanátt með dálitlum skúrum eða éljum, en þurru sunnanlands. Svalt í veðri.