Bleikur dagur í dag

Bleiki dagurinn hefur notið mikilla vinsælda hjá Íslendingum undanfarin ár, en bleikur er baráttulitur októbermánaðar. Þennan dag eru allir landsmenn hvattir til að sýna samstöðu, klæðast bleiku og hafa bleikt í fyrirrúmi.

Starfsfólk Nýprents og Feykis á Sauðárkróki klæddist bleiku í tilefni dagsins eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Fyrir þá sem eru að velta fyrir sér hvernig liðið komst á ísjaka þá skal það upplýst að það gerðist rafrænt.

Fólk á Norðurlandi vestra er hvatt til þess að senda myndir sem teknar hafa verið í tilefni bleika dagsins á netfangið feykir@feykir.is.

Fleiri fréttir