Blíða í kortunum
Það er heldur betur blíða í kortunum næsta sólahringinn og ljóst að þeir sem njóta útivistar munu njóta sín enda daginn tekið að lengja svo eftir er tekið. Spáin gerir ráð fyrir norðaustan 5-10 og lítilsháttar rigningu eða slyddu á Ströndum, en annars hægari og þurrt að kalla. Austan 3-8 og birtir til á morgun. Hiti nálægt frostmarki.
Þrátt fyrir blíðuveður er fljúgandi hálka á götum og hætt við að svo sé einnig á vegum úti eins og oft er við þessar veðuraðstæður.