Blóðbað í barnaherberginu

Laugardaginn 29. september klukkan 16:00 - 18:00 verður boðið upp á námskeið og umræðufund um áhrif óhóflegrar tölvunotkunar unglinga með sérstaka áherslu á ofbeldisleiki.Námskeiðið fer fram í húsnæði Simey á Akureyri en verður sent gegnum fjarfundabúnað í námsstofuna á Skagaströnd, sem er á efstu hæðinni á gamla kaupfélaginu. Námskeiðið er ókeypis og allir eru velkomnir.

Dagskrá:

1.Erindi frá Arnari Arngrímssyni og Guðjóni H. Haukssyni þar sem velt er fyrir sér spurningum sem varða tölvunotkun og áhrif á félagsfærni og þátttöku unglinga í samfélaginu.

2. Reynslusaga tölvufíkils

3. Þátttakendur fá tækifæri til að prófa ofbeldisfulla tölvuleiki og upplifa stemninguna fyrir framan skjáinn (EKKI Í BOÐI Á SKAGASTRÖND)

4. Pétur Maack, sálfræðingur fjallar um áhrif tölvuleikjanna og hvað er hægt að gera

5.Umræður

/Heimild: skagastrond.is

Fleiri fréttir