Blönduós heilsueflandi bær

Blönduós. Mynd:Róbert Daníel Jónsson.
Blönduós. Mynd:Róbert Daníel Jónsson.

Frá Heilsuhópnum á Blönduósi

Íbúar bæjarins hafa flestir orðið varir við verkefnið okkar ,,Heilsudagar á Blönduósi“ sem stóðu yfir frá 23.-28. september. Markmiðið með þessum flottu dögum var einfalt. Að hvetja fólk til að huga vel að heilsunni og hreyfa sig markvisst sem tókst ágætlega og ná til allra aldurshópa í samfélaginu og stuðla þannig að góðri heilsu, vellíðan og auknum lífsgæðum.

Aðstaðan sem við höfum á Blönduósi og í nágrenni bæjarins er eins og best verður á kosið til að stunda fjölbreytta hreyfingu, bæta heilsuna eða viðhalda góðri heilsu. Við eigum frábæra aðstöðu til íþróttaiðkunnar og höfum fjölbreytt íþróttastarf fyrir alla aldurshópa. Hér á staðnum er einnig gott sjúkrahús og starfsfólk sem skiptir okkur bæjarbúa miklu máli. Umhverfið er einstakt, ótal útivistarmöguleikar, stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir svo eitthvað sé nefnt. Við fundum fyrir mikilli jákvæðni bæjarbúa á þessum dögum og ferðamenn sem komu til okkar voru einnig mjög ánægðir með að vera boðið í sund og fá ferska ávexti í heita pottinn. Einstaklingar, fyrirtæki og íþróttafélög lögðu öll sitt að mörkum og allir tilbúnir að taka þátt. Þetta er í þriðja sinn sem Heilsudagar eru haldnir á Blönduósi og hefur þátttaka ykkar og viðtökur farið fram úr björtustu vonum. Það er von okkar að þessir dagar séu komnir til að vera og verði hér eftir viðburður sem eigi síðan eftir að stækka og dafna.

Að lokum viljum við nota tækifærið og þakka öllum þeim sem komið hafa að þessum dögum, einstaklingum, fyrirtækjum, félagasamtökum og stuðnings aðilum. Án ykkar hefði þetta ekki verið hægt. Verum stolt af bænum okkar og fólkinu okkar. Tölum bæinn okkar upp og höfum jákvæðni að leiðarljósi. Blönduós er heilsueflandi bær og með áframhaldandi vinnu getum við gert margt saman og gert bæinn okkar enn betri á margan hátt. Gerum gott bæjarfélag enn betra. 

Heilsuhópurinn

Erla, Róbert og Steinunn

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir