Blönduós í Samtök orkusveitarfélaga

Frá blönduósi
Frá blönduósi

Á aðalfundi Samtaka orkusveitarfélaga í liðinni viku var inntökubeiðni Blönduósbæjar í samtökin samþykkt og var Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri kjörinn varafulltrúi. Fyrir var eitt sveitarfélag á Norðurlandi vestra í samtökunum, Húnavatnshreppur. Samtök orkusveitarfélaga voru stofnuð árið 2011 og er markmið þeirra einkum að standa vörð um hagsmuni aðildarsveitarfélaga í öllum málum sem tengjast byggingu orkuvera og virkjana, orkunýtingu, fjárhagslegum hagsmunum í þessu sambandi og umhverfismálum.

Megináhersla hefur verið lögð á að þrýsta á um nauðsynlegar breytingar í skattaumhverfi orkuframleiðslu, með áherslu á fasteignagjöld, en einnig hafa samtökin látið sig varða lagaumhverfi vindorkuframleiðslu ásamt fleiri þáttum.

Stefán Bogi Sveinsson, bæjarfulltrúi á Fljótsdalshéraði, var kjörinn formaður samtakanna.

Fleiri fréttir