Blönduósbær aðili að Wild Entrepeneurs umsókn

Frá Blönduósi. Mynd: KSE.
Frá Blönduósi. Mynd: KSE.

Í fundi byggðaráðs Blönduósbæjar, síðastliðinn mánudag, var lagt fram erindi frá G. Ágúst Péturssyni vegna „Wild Entrepeneurs“ umsóknar sem hlotið hefur vinnuheitið "Growth for Adventure Tourisn Entrepreneurs (GATE).

Fyrirhugað er að sækja um stuðning við samstarfsverkefnið Wild Entrepreneurs í sk. "Northern Pherepery Program (NPP)" en það er sjálfstæður samkeppnissjóður sem fjármagnaður er af Evrópusambandinu. Aðalumsækjandi verður bæjarfélagið Sligo á Norð-vestur Írlandi en gert er ráð fyrir að aðilar frá Íslandi, Skotlandi, Noregi og Svíþjóð verði einnig með í umsókninni. Blönduósbær samþykkti að gerast aðili að umsókninni. 

Fleiri fréttir