Blönduósbær auglýsir eftir viðburðarstjóra
Blönduósbær auglýsir eftir starfsmanni við stjórnun og umsjón með viðburðum í sveitarfélaginu á árinu 2012. Um er að ræða tímabundið starf og felst það m.a. í að hafa umsjón með Húnavöku, bæjarhátíð Blönduóss, sem haldin verður dagana 20.-22. júlí nk. og útgáfu kynningarefnis þar sem vakin er athygli á viðburðum í sveitarfélaginu.
„Blönduós er 900 manna sveitarfélag í Austur-Húnavatnssýslu. Ferðaþjónusta er vaxandi atvinnugrein og býður svæðið upp á skemmtilegar heimsóknir fyrir ferðamenn allt árið um kring. Þá er ein glæsilegasta sundlaug landsins á Blönduósi,“ segir í auglýsingu á heimasíðu Blönduóssbæjar.
Umsóknarfrestur er til 5. mars 2012. Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma 455 4700 eða á netfangið arnar@blonduos.is.