Blönduósbær kominn á Facebook

Blönduósbær er kominn á Facebook. Byggðaráð Blönduósbæjar samþykkti á fundi sínum 19. mars síðastliðinn að opnuð yrði Fasbókarsíða á vegum bæjarins, þegar er komin í loftið og má nálgast hér.

Á fundinum var jafnframt lagður fram samningur við Róbert D. Jónsson um afnot Blönduósbæjar af ljósmyndum í hans eigu til nota í markaðs- og auglýsingaskyni á vegum sveitarfélagsins. Róbert Daníel er öflugur áhugaljósmyndari og hefur Feykir m.a. notið góðs af myndum hans.

Fleiri fréttir