Blönduósbær samþykkir breyttar reglur um byggðakvóta

Bæjarstjórn Blönduósbæjar samþykkti undanþágu frá reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðalaga á fiskveiðiárinu 2012/2013 á fundi sínum í gær. Í fundargerð kemur fram að fyrir fundinum lágu samningsforsendur milli útgerðaraðila og fiskvinnslu á Blönduósi sem bæjarráð taldi viðunandi fyrir alla aðila.

Undanþágurnar voru frá reglugerð  nr. 628/2012, um úthlutun byggðakvóta. Bæjarráð samþykkti eftirfarandi reglur:

a) 4. gr. reglugerðarinnar breytist þannig:

„Skipta skal 37,5% úthlutaðs byggðakvóta jafnt milli þeirra fiskiskipa  sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og 25% skal úthlutað til  fiskiskipa  sem orðið hafa fyrir samdrætti í veiðum á rækju í Húnaflóa skipt í hlutfalli við hlutdeild í Húnaflóarækju 1. september 2012 og 37,5% sem verði skipt milli þeirra fiskiskipa  sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar, í hlutfalli við landaðan afla hlutaðeigandi fiskiskips, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2011 til 31. ágúst 2012.“

b) 6. gr. reglugerðarinnar breytist þannig:

„Fiskiskipum er skylt að landa til vinnslu innan  Blönduós  afla sem nemur, í þorskígildum talið, jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað.“

Fleiri fréttir