Blönduósbær tekur undir bókun SSNV
Á fundi bæjarráðs Blönduósbæjar sem haldinn var í gær var rætt um bókun stjórnar SSNV frá 4. febrúar þar sem lýst er yfir miklum vonbrigðum með boðaðar lækkanir á framlögum ríkisins til menningarmála á Norðulandi vestra. Bókunin er svohljóðandi:
„Stjórn SSNV lýsir yfir miklum vonbrigðum á miklum boðuðum niðurskurði ríkisins til Menningarsamnings Norðurlands vestra og bendir á að niðurskurður til samningsins nemur 27% frá árinu 2008. Þá telur stjórnin ófullnægjandi forsendur fyrir þeim stuðlum sem liggja að baki útreiknuðum framlögum mennta-og menningarmálaráðuneytisins til menningarsamninga landshlutanna og gagnrýnir harðlega val á þeim þáttum sem lagðir eru til grundvallar. Stjórnin bendir á að áður voru ekki síst, hagvaxtar og fólksfjöldaþróun lögð til grundvallar skiptingu fjárveitinga sem eru að mati stjórnar mun eðlilegri viðmið en stærð afrétta eða fjarlægð frá höfuðborg svo dæmi sé tekið“