Blönduósbær vill sameiningarviðræður

Bæjarstjórn Blönduósbæjar hefur falið bæjarstjóra að kanna hug forsvarsmanna annarra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu til sameiningar. Telur bæjarstjórnin mikilvægt að unnið verði formlega að sameiningu, að því er fram kemur í bókum sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar í fyrradag.

Bókunin var gerð í kjölfar þess að lögð var fram til kynningar skýrsla um úttekt á hagkvæmni sameiningar sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Eins og Feykir hefur fjallað um fól Byggðasamlag um menningar- og atvinnumál í Austur-Húnavatnssýslu í júlí sl. KPMG að vinna að samantekt á fjármálalegum upplýsingum og aðstoð við greiningu og samantekt á stærstu hagræðingarmöguleikum væru sveitarfélögin fjögur í Austur Húnavatnssýslu sameinuð.

Fór vinnan fram á tímabilinu 17. júlí til 1. desember 2013. Í skýrslunni kemur fram að beint fjárhagslegt hagræði af sameiningu allra sveitarfélaga í sýslunni gæti verið á bilinu 34 til 50 milljónir króna á ári. Skuldahlutfall sameinaðs sveitarfélags yrði nálægt landsmeðaltali.

Í viðtali sem viðtali sem Feykir átti við Arnar Þór Sævarsson, bæjarstjóra á Blönduósi, í desember síðast liðinn kom fram að engin sérstök áform væru uppi um sameiningarviðræður í kjölfar skýrslunnar.

Fleiri fréttir