Blönduósbær vill taka á móti flóttamönnum
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
11.09.2015
kl. 13.25
Á síðasta fundi bæjarstjórnar Blönduósbæjar, þann 8. september sl., lýsti Blönduósbær sig reiðubúinn til viðræðna við stjórnvöld um móttök flóttamanna. Var það samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.
Eins og fram hefur komið á feykir.is hefur Sveitafélagið Skagafjörður þegar gefið út sambærilega yfirlýsingu.