Blönduskóli hlaut skjöldinn í Framsagnarkeppni

Framsagnarkeppnin í Húnavatnssýslum var haldin sl. fimmtudag, þann 15.mars á Húnavöllum en Húnavallaskóli sá um lokahátíðina að þessu sinni. Markmið keppninnar er að glæða tilfinningu og metnað húnvetnskra grunnskólanema fyrir íslensku máli og framsögn, eins og fram kemur á heimasíðu Húnavallaskóla.

Hver skóli sendi þrjá keppendur til leiks, þeir skólar voru: Blönduskóli, Húnavallskóli, Höfðaskóli, og Grunnskóli Húnaþings vestra. Forkeppni var haldin í hverjum skóla og mættu þeir þrír sem sköruðu fram úr í hverjum skóla fyrir sig. „Óhætt er að segja að allir keppendur hafi staðið sig vel og settu dómnefndina í talsverðan vanda því erfitt var að velja úr,“ segir á heimasíðu Húnavallaskóla.

Keppendur lásu brot úr skáldverki eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, ljóð eftir Gyrðir Elíasson og ljóð að eigin vali. Dómarar voru að þessu sinni Þórður Helgason, Guðrún Bjarnadóttir, Sigrún Grímsdóttir og Gísli Grímsson.

Þeim sem var raðað í þrjú efstu sætin voru:

  1. Þórunn Erla Guðmundsdóttir - Blönduskóla
  2. Páll Halldórsson - Höfðaskóla
  3. Eymundur Lórens Grétarsson - Höfðaskóla

Sigurvegararnir hlutu gjafabréf í verslunum Eymundsson og gjafabréf frá Pottinum Restaurant Blönduósi. Síðan fengu allir keppendurnir tvenn bókaverðlaun og skólarnir gáfu Ljóðasafn eftir Stein Steinarr og Félag íslenskra bókaútgefenda gaf bókina Nokkur ljóð eftir Gyrðir Elísson.

Keppnin var tileinkuð Grími heitnum Gíslasyni, fréttaritar, og fyrrum bónda frá Saurbæ í Vatnsdal og að lokum var farandskjöldur afhentur sem gefinn var af sjóði sem stofnaður var til heiðurs Grími. Sá skóli sem hlýtur 1. sætið varðveitir skjöldinn fram að næstu keppni en það kom í hlut Blönduskóla að þessu sinni.

 

Fleiri fréttir