Boðið um borð í Húna II og Knörrinn
Í tilefni 50 ára afmæli Húna II mun hann koma við í sinni gömlu heimahöfn Skagaströnd í dag ásamt Knerrinum frá Húsavík. Þeir munu verða til sýnis fyrir almenning í kvöld þriðjudaginn 21. maí kl. 20.00 – 22.00.
Húni II er á hringferð um landið í tilefni hálfrar aldar afmælis skipsins ásamt Knerrinum sem einnig fagnar hálfrar aldar smíðaafmæli.
Húni II er stærsta eikaskip smíðað á Íslandi, sem enn er á floti. Hann var smíðaður fyrir Skagstrendinga hjá KEA 1963 og var m.a. gerður út á síldveiðar. Knörrinn frá Húsavík var einnig smíðaður hjá KEA sama ár.
Húni II og Knörrinn eru gott vitni um fagleg og vönduð vinnubrögð við trébáta smíði og íslenska verkþekkingu. Skagaströnd.is sagði frá þessu.