Bók um Sigurð dýralækni komin út

Út er komin hjá Bókaútgáfunni Hólum bókin Sigurður dýralæknir en hún er fyrra bindið af ævisögu Sigurðar Sigurðarsonar dýralæknis frá Keldum. Hann er sögumaður góður og kann margar óborganlegar sögur af mönnum og málefnum, en er auk þess þekktur fyrir kveðskap sinn og kvæðalög. 

 

Hér segir af uppvexti hans á Sigurðarstöðum í Bárðardal, Keldum á Rangárvölum, Selalæk og Hemlu; einnig námsárum hans í Héraðsskólanum á Skógum og Menntaskólanum á Akureyri, daglaunavinnu sem pakkhúskarl á Rauðalæk og slátrari á Hellu svo að nokkuð sé nefnt.  Ennfremur er sagt frá mönnum og málleysingjum sem orðið hafa á vegi hans, skrýtnum og skemmtilegum karakterum, eins og hann er sjálfur, kyndugum körlum og kerlingum, bændum og búaliði, prestum og kvenleysingjum og kvennamönnum víða um land.  Hér segir líka meðal annars af hlöðunni sem var dregin yfir heyið, reimleikum á Rauðalæk, ófúnu líki í kirkjugarðinum á Keldum, íhaldskoppinum og úthrópuðum rottuskítssala á Landi og í Holtum.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir