Bók um „Sjósókn frá Skagaströnd og Vélbátaskrá 1908-2010“

Bókin „Sjósókn frá Skagaströnd og Vélbátaskrá 1908-2010“ er komin út. Þar hefur Lárus Ægir Guðmundsson tekið saman skrá um alla vélbáta sem hafa átt heimahöfn á Skagaströnd frá árinu 1908, þegar fyrsti vélbáturinn var keyptur frá Danmörku og fram til 2010.

 

Um er að ræða um 220 báta og má sjá myndir af flestum þeirra ásamt upplýsingum um smíðaár, smíðaefni, stærð og vélargerð sem og eigendasögu og hvenær þeir voru keyptir eða seldir til og frá Skagaströnd.

Á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagastrandar segir um bókina:

„Jafnframt er að finna fjölmargar frásagnir af ýmsum atburðum sem tengjast fyrrgreindum bátum eins og eftirminnilegar sjóferðir, strönd og slysfarir. Einnig stutt ágrip af útgerð báta frá Skagaströnd fyrr á öldum og  greint frá helstu útgerðarfélögum síðustu áratugina. Þá er hér einnig að  finna upplýsingar um bátasmíði fyrr og síðar og frásagir sjómanna eldri sem yngri varðandi margt sem upp kom í dagsins önn. Bókin er því svolítið ágrip af ýmsum þáttum sem tengjast útgerðarsögu Skagstrendinga í rúmleg heila öld.“

„Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908-2010“ verður boðin til sölu á næstu dögum og kostar bókin 3000 kr.

Útgáfan er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.

 

Fleiri fréttir