Bókakvöld í Spákonuhofi

Í kvöld fimmtudagskvöldið 8. des verður opið í Spákonuhofinu frá kl: 20:00-22:00. Höfundar kynna og  árita bók sína um Þórdísi spákonu.  Einnig verða bækur frá Töfrakonum til sölu.

 

Heitt verður á könnunni, kakó og kökur og sagt er í tilkynningu frá Spákonuhofinu á Skagaströnd að þar verði í afgreiðslunni kortagleypi sem er annað heiti yfir posa þannig að óhætt er fyrir fólk að greiða með korti finni það jólagjöfina á staðnum.

 

Fleiri fréttir