Bókasafnið flytur í Bjarmanes
Breytingar standa yfir á bókasafninu í Fellsborg um þessar mundir og á meðan framkvæmdir fara fram flytur safnið starfsemi sína í kjallara Bjarmaness.
Einungis hluti bókanna verður fluttur og settur upp í Bjarmanesi en leitast verður við að setja upp safn bóka sem inniheldur nýjustu og vinsælustu bækurnar til útláns.
Opnunartími bókasafnsins í Bjarmanesi verður:
Mánudaga kl. 16 – 19
Miðvikudaga kl. 15 – 17
Fimmtudaga kl. 15 - 17