Bókin Paradísarstræti er komin út
Hjá Bókaútgáfunni Merkjalæk í Svínadal í A-Hún. er komin út bókin Paradísarstræti - Lena Grigoleit, austur-prússnesk bóndakona segir sögu sína. Pétur M. Sigurðsson og Sigurður H. Pétursson þýddu bókina úr þýsku. Höfundur bókarinnar er Ulla Lachauer, þýsk blaðakona. Hún kom í þorpið, þar sem Lena bjó, árið 1989 eftir fall Berlínarmúrsins. Fyrir tilviljun kemst hún í kynni við Lenu sem þá var ein eftir í þorpinu af fyrrum íbúum þess.
Með Ullu og Lenu takast góð kynni og nokkrum árum seinna dvelur Ulla hjá Lenu í tvær vikur með upptökutæki og stílabók og afraksturinn er bókin Paradísarstræti. Lena upplifir tvær heimsstyrjaldir og útlegð í 5 ár í Síberíu með fjölskyldunni. Hún kemst heim aftur. Lena hefur mikla frásagnarhæfileika og frásögn hennar er einlæg og sönn. Frásögnin snýst um hið mannlega án nokkurra stríðslýsinga á þessum miklu umróta- og stríðstímum sem Lena upplifir, sem skók alla Evrópu á 20. öld og gjörbreytti landakorti álfunnar. Í bókarlok er vandaður eftirmáli um tilurð bókarinnar og sögu Memelhéraðs. Einnig eru í bókinni fjögur landakort sem sýna þróun landsvæðisins á 20. öld ásamt fjölda ljósmynda. Bókin varð metsölubók í Þýskalandi þegar hún kom út og hefur verið þýdd á nokkur tungumál.
Bókin er komin í sölu í mörgum verslunum á Höfuðborgarsvæðinu en einnig er hægt að panta bókina hjá útgefanda, Sigurði H. Péturssyni, í síma 557-2480 eða 892-3215 eða með tölvupósti í netfang sighp@emax.is.