Bongóblíða um helgina

MYND VEDUR.IS
MYND VEDUR.IS

Verðurspáin næstu daga er frétt, það þarf nefnilega ekki alltaf bara að skrifa þegar það eru gular viðvaranir. Kannski má samt segja að það sé gul viðvörun í þessari frétt því næstu dagar líta svo sannarlega vel út og samkvæmt spánni verður mjög gott veður um helgina og hægt að segja að það verði bongóblíða um allt land. Hlýindi, birta og lítill vindur. 

Samkvæmt vef verðurstofunnar er mesta hitanum er spáð á Austurlandi, 20 stigum síðdegis á laugardag en sólríkt og bjart um allt land. Meðal annars 16 stigum á höfuðborgarsvæðinu sem toppar nú næstum því allt síðasta sumar hjá þeim í borginni og Suðurlandi og 18 stigum á Borgarfjarðarsvæðinu. 

Á fimmtudag:
Suðlæg átt, víða 3-8 m/s, léttskýjað og hiti 16 til 22 stig, en suðaustan 8-13, dálítil væta öðru hvoru og hiti 10 til 16 stig vestantil.

Á föstudag:
Hæg suðlæg eða breytileg átt, en að 8 m/s suðvestanlands. Yfirleitt bjart, en sums staðar þokuloft við ströndina. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast fyrir norðan.

Á laugardag, sunnudag og mánudag:
Hægir breytilegir vindar, bjartviðri og hlýtt, en sums staðar þoka og heldur svalara við sjávarsíðuna.

 

 

 

.

Fleiri fréttir