Bónus opnar verslun við Freyjugötu

Hinir nýju eigendur stefna á að opna nýju verslunina miðsumars og vilja hefja framkvæmdir hið fyrsta til að gera húsnæðið klárt undir nýja og glæsilega verslun.
Hinir nýju eigendur stefna á að opna nýju verslunina miðsumars og vilja hefja framkvæmdir hið fyrsta til að gera húsnæðið klárt undir nýja og glæsilega verslun.

Frestur til að senda inn kauptilboð í gamla barnaskólahúsið við Freyjugötu á Sauðárkróki er runninn út og hefur verið farið yfir umsóknir. Besta tilboðið barst frá Hagar Verslanir ehf. sem rekur Bónusverslanir um allt land og er ætlunin að opna nýja verslun í húsinu. „Við höfum ekki opnað nýja verslun um nokkurt skeið og höfum lengi haft augastað á Skagafirði. Þegar við sáum húsnæðið auglýst til sölu stukkum við á tækifærið,“ sagði talsmaður verslunarkeðjunnar í samtali við Feyki. 

Hinir nýju eigendur stefna á að opna nýju verslunina miðsumars og vilja hefja framkvæmdir hið fyrsta til að gera húsnæðið klárt undir nýja og glæsilega verslun. Til stendur að tæma húsið í dag af gömlum mublum sem enn eru í húsinu og þeim sem vilja býðst að taka það sem þeir vilja, þeim að kostnaðarlausu á milli kl. 14-16.   

„Við vonum að Skagfirðingar taki hinni nýju lágvöruverslun vel,“ sagði talsmaður verslunarinnar að lokum. 

UPPFÆRT 2. apríl kl. 9:30: Eins og nokkrir hafa getið sér til um þá var hér um apríl-gabb að ræða. Frestur til að skila inn kauptilboðum í gamla barnaskólann rann út 31. mars og mun skýrast á næstu dögum hvað kemur út úr því.

Fleiri fréttir