Borga ekki meðlög í desember

Stjórn Samtaka meðlagsgreiðenda hafa samþykkt að boða til greiðsluhlés meðlaga í desembermánuði. Samtökin óskuðu eftir samstarfi Sambands íslenskra sveitafélaga við að koma á siðbótum í viðskiptum stofnanna sveitafélaganna við meðlagsgreiðendur. Boði samtakanna var hafnað samhljóða á stjórnarfundi Sambandsins.

Vandi meðlagsgreiðenda er margþættur en snertir þó stofnanir sveitafélaganna með sérstökum hætti.  Innheimtustofnun sveitafélaganna viðhefur engin opinber viðmið sem hún styður við ákvörðun um greiðslu- og skuldaívilnanir til handa meðlagsgreiðendum, og tekur ekki tillit til uppeldiskostnaðar skilnaðarbarna, né heldur til kostnaðar við að ala upp börn í nýjum fjölskyldum. Þá synjar félagsþjónusta sveitafélaganna beiðni meðlagsgreiðenda um fjárhagsaðstoð á þeim grundvelli að þeir séu barnslausir einstaklingar sem geta sýnt fram á heildartekjur.

„Við vitum um raunverulegt dæmi þar sem einstæður fráskilinn faðir 5 barna með 175 þúsund í útborguð laun, þarf að greiða þrjú meðlög samkvæmt samningi við Innheimtustofnun.  Þá hefur hann um 100.000 kr. í ráðstöfunartekjur til að kosta nauðsynjar og uppeldi við börn sín.  Þegar hann leitar á náðir félagsþjónustunnar fær hann synjun á beiðnum sínum vegna þess að hann er færður til bókar sem barnslaus einstaklingur sem getur sýnt fram á heildartekjur,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.

Samtökin hvetja því meðlagsgreiðendur til sjávar og sveita að draga greiðslur meðlaga í desembermánuði, og leggja þess í stað peninginn fyrir og greiða svo skuldina að loknu greiðsluhléi.  Hins vegar ber að geta þess að samtökin áskilja sér rétt að lengja greiðsluhléið ef nauðsyn krefur. Mikilvægt er hér að árétta að eingöngu er átt við greiðslur til Innheimtustofnunar en ekki meðlagsgreiðslur sem greiddar eru án aðkomu stofnunarinnar.  Auk þess eru meðlagsgreiðendur hvattir til að létta undir með lögheimilisforeldrum með að bjóða þeim aukna umgengni við börn sín.

„Ljóst að meðlagsgreiðendur borga meðlög með 20,000 börnum til Innheimtustofnunar í hverjum mánuði og má ætla að heildargreiðslurnar nemi um hálfum milljarði í skilvísum mánuði.  Þetta fjárflæði ætlum við að stöðva tímabundið.“

Samtökin vilja nefna að Jafnréttisstofa, umboðsmaður barna og nefnd velferðarráðherra um karla og jafnrétti hafa stutt kröfur samtakanna.

Fleiri fréttir