Börn og umhverfi
Rauðakrossdeild Austur-Húnavatnssýslu heldur námskeiðið, Börn og umhverfi, fyrir einstaklinga á aldrinum 12 - 15 ára dagana 6., 7., 13. og 14. maí nk. Á námskeiðinu sem er 16 kennslustundir, verður farið í ýmsa þætti er varða umgengni og framkomu við börn. Rætt verður um árangursrík samskipti, leiðtogahæfni, agastjórnun, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng.
Í tilkynningu frá deildinni segir að lögð verði áhersla á umfjöllun um slysavarnir og algengar slysahættur í umhverfinu ásamt ítarlegri kennslu í skyndihjálp. Að auki fá þátttakendur innsýn í sögu og starf Rauða krossins. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Sigríður Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur og Sigríður Helga Sigurðardóttir, leikskólakennari.