Braut 112 á Tjörn á Skaga rauf 100 tonna múrinn

Braut 112 á Tjörn, f. Stígur 97010. Mynd af rml.is
Braut 112 á Tjörn, f. Stígur 97010. Mynd af rml.is

Afrekskýrin Braut 112 á Tjörn á Skaga hefur rofið 100 tonna múrinn í æviafurðum en í lok febrúar hafði hún mjólkað 99.821 kg mjólkur yfir ævina en hún var í 16,1 kg dagsnyt þann 25. febrúar. Á heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins segir að því megi ætla að hún hafi mjólkað sínu 100 þús. kg mjólkur þann 12. mars eða þar um bil.

Braut 112 er fædd 12. september 2005, dóttir Stígs 97010 og Þúfu 026. Hún bar sínum fyrsta kálfi þann 23. október 2007 og hefur borið níu sinnum síðan þá, síðast 12. febrúar 2017. Mestum afurðum á einu ári náði kýrin árið 2011 þegar hún mjólkaði 10.961 kg en hún hefur fjórum sinnum náð ársafurðum upp á meira en 10 þús. kg, 2010 (10.007 kg), 2011 (10.961 kg), 2012 (10.190 kg) og 2017 (10.699 kg). Mestu mjólkurskeiðsafurðir hennar eru á yfirstandandi mjólkurskeiði sem er orðið æði langt. Hún er nú komin í 19.220 kg frá síðasta burði. Á sínu 5. mjólkurskeiði mjólkaði hún hins vegar 14.630 kg.

Á rml.is segir að eðlilega hafi tímans tönn sett mark sitt á Braut enda fáar kýr sem bæði ná þessum aldri og afurðum. Það að kýr nái 14. vetra aldri í dag er að verða afar fátítt og hvað þá að þær skili slíkum afurðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir