Breiðhyltingar höfðu betur

Kormákur/ Hvöt, sameiginlegt lið Vestur- og Austur-Húnvetninga, sem leikur í fjórðu deild karla í sumar átti sinn fyrsta heimaleik á föstudagskvöldið og var hann háður á Blönduósvelli í tilefni Húnavöku.

Þrátt fyrir góðan stuðning heimamanna og Húnavökugesta hafði B-lið Breiðholts (KB) betur og fór leikurinn 0-1. Einar Örn Einarsson skoraði eina mark leiksins á 40 mínútu.

Kormákur/ Hvöt er nú í áttunda og neðsta sæti riðilsins með 2 stig.

Fleiri fréttir