Brenna og flugeldasýning á Blönduósi
Brenna og flugeldasýning verða á sínum stað á gamlárskvöld á vegum Björgunarfélagsins Blöndu. Kveikt verður í brennunni klukkan 20:30 og hefst flugeldasýning skömmu síðar. Samkvæmt Húna.is er verið að safna styrktaraðilum að flugeldasýningunni til að hún verði enn glæsilegri en áður.
Flugeldamarkaður Björgunarfélagsins Blöndu að Efstubraut 3, verður opinn sem hér segir:
Föstudagurinn 28. desember frá klukkan 14 til 20.
Laugardagurinn 29. desember frá klukkan 10 til 23.
Sunnudagurinn 30. desember frá klukkan 10 til 23.
Gamlársdag, 31. desember frá klukkan 10 til 16.
Börn yngri en 16 ára fá ekki afgreiðslu nema í fylgd með fullorðnum. Flugaldasala er aðal fjáröflun Björgunarfélagsins Blöndu.
