Breyting á aðalskipulagi Skagastrandar
Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir á heimasíðu sinni breytingar á aðalskipulag sveitarfélagsins. Um er að ræða óverulega breytingu sem felst í breyttri legu stofnpípu hitaveitu sunnan Vallarbrautar. Var breytingin samþykkt í sveitarstjórn 30. júlí sl. og hefur verið send skipulagsnefnd til staðfestingar.Breytingin felst í að umrædd stofnpípa verður lögð austar en fram kemur í gildandi aðalskipulagi fyrir árin 20120-2022. Greinargerð með rökstuðningi er á uppdrætti dags 9. júlí sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins. Í auglýsingu er þeim sem óska nánari upplýsinga bent á að snúa sér til sveitarstjóra Skagastrandar.