Breyting á aðalskipulagi vegna Skotfélagsins Markviss
Skipulags- umhverfis- og umferðarnefnd Blönduósbæjar hefur samþykkt endurskoðaða aðalskipulagstillögu er varðar æfinga- og keppnissvæði Skotfélagsins Markviss og verður hún send Skipulagsstofnun til áframhaldandi meðferðar.
Skipulagsstofnun hafði ekki samþykkt fyrri tillögu og var því brugðist við með breytingum á fyrri samþykkt. Breytingin varðar aðalskipulag Blönduósbæjar 2010-2030.
Hægt er að sjá myndir af framtíðarsvæði Skotviss á Fésbókarsíðu þeirra.