Breyting á deiliskipulagi við Hólanes

Mynd af mögulegri uppbyggingu sjóbaða á Skagaströnd.
Mynd af mögulegri uppbyggingu sjóbaða á Skagaströnd.

Á heimasíðu Skagastrandar er auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi við Hólanes og fjallar um áform vegna uppbyggingar sjóbaða við Hólanes ásamt breytingum á lóðamörkum fyrir Fjörubraut 6 og 8. Skilgreind er aðkoma og bílastæði fyrir sjóböð og breytingar á stígakerfi.

Tillagan liggur frammi á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar, Túnabraut 1-3, frá og með deginum í dag, fimmtudeginum 9. desember 2021, til 21. janúar 2022 og er einnig til sýnis á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagastrond.is. Opið hús verður um tillöguna 13. desember nk. frá kl.10:00-12:00 á skrifstofu sveitarfélagsins.

Tillaga að breytingu á deiliskipulag Hólanessvæðis.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir til 21. janúar 2022 en skila skal athugasemdum á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar að Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd og skulu athugasemdir og ábendingar vera skriflegar.

Tillögu að breytingu á deiliskipulagi má nálgast HÉR.
Uppdrátt má nálgast HÉR

 

.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir