Breyting á fyrirkomulagi nýliðunarstyrkja
Matvælastofnun auglýsir eftir umsækjendum vegna breytts nýliðunarstuðnings sem veittur er til fjárfestinga í búrekstri. Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði. Framlög til nýliðunarstuðnings beinast að einstaklingum í eigin nafni eða til lögaðila sem nýliði á a.m.k. 25% hlut í.
Þeir einstaklingar einir geta sótt um nýliðunarstuðning sem:
• eru skráðir eigendur eða leigjendur lögbýlis/garðyrkjubýlis og stunda landbúnað á lögbýli/garðyrkjubýli með virkt virðisaukaskattsnúmer og starfsemi sem fellur undir atvinnugreinanúmer 01 og 02 í atvinnuvegaflokkun Hagstofu Íslands, sbr. ÍSAT2008, þó ekki starfsemi í undirflokkum 01.61, 01.62, 01.63, 01.64, 01.70 og 02.40.
• eru á aldrinum 18-40 ára á því ári sem óskað er eftir stuðningi.
• eru að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hafa leigt eða keypt búrekstur innan þriggja ára frá 1. janúar á umsóknarári.
• hafa ekki áður hlotið nýliðunarstuðning í mjólkurframleiðslu eða bústofnskaupastyrki til frumbýlinga í sauðfjárrækt samkvæmt þágildandi reglum árin 2014-2016.
Nýliðunarstuðningur er veittur til fjárfestinga í búrekstri. Stuðningur getur að hámarki numið 20% af heildarfjárfestingakostnaði á ári og skulu framlög til einstakra nýliða ekki vera hærri en níu milljónir króna í heildarstuðning. Stuðningur til nýliða sem á hlut í lögaðila skal taka mið af eignarhlut nýliða í lögaðilanum. Sé áætlað að framkvæmdartími við fjárfestinguna sem sótt er um stuðning fyrir sé lengri en eitt ár skal umsækjandi gera grein fyrir áfangaskiptingu hennar í framkvæmda- og verkáætlun skv. c-lið 2. mgr. 16. gr. reglugerðar nr. 1240/2016.
Sjá nánar á vef Matvælastofnunar