Breytingar fyrirhugaðar á læknaþjónustu HSB
Fyrirhugaðar eru breytingar á læknaþjónustu Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi og telur Valbjörn Steingrímsson, forstjóri stofnunarinnar að með breyttu fyrirkomulagi sé í raun verið að auka og bæta þjónustuna. Þetta kom fram á fundi hreppsnefndar Húnavatnshrepps í síðustu viku þar sem Valbjörn mætti til að gera grein fyrir rekstri HSB.
Í máli Valbjörns kom m.a. fram að rekstur stofnunarinnar hafi gengið í gegnum mikla endurskipulagningu undanfarið og á þessu ár sé gert ráð fyrir að reksturinn verði í megindráttum eins og á síðasta ári. Þó séu fyrirhugaðar breytingar á læknaþjónustu stofnunarinnar og telur Valbjörn að með breyttu fyrirkomulagi á læknaþjónustu sé í raun verið að auka og bæta þjónustuna, eins og áður sagði.
Valbjörn lagði fram á fundinum erindi frá Hollvinasamtökum HSB, sem hafa farið á stað með söfnun til kaupa á rafrænni sjóntöflu og blöðruskanna og leitað eftir stuðningi frá einstaklingum/sveitarstjórnum/fyrirtækjum og félagasamtökum í A-Húnavatnssýslu.
Hreppsnefnd Húnavatnshrepps mun taka erindið fyrir á næsta fundi hreppsnefndar.
/Húni.is