Breytingum á lögum um tekjustofna sveitarfélaga mótmælt

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) mótmæla þeim hugmyndum sem koma fram í þingskjali nr. 290, um breytingar á tekjustofnum sveitarfélaga, þar sem gert er ráð fyrir að auknum tekjum Jöfnunarsjóðs vegna hlutdeildar í sérstökum skatti á fjármálafyrirtæki verði ráðstafað árlega í samræmi við álagt heildarútsvar ársins 2013. Þetta kemur fram í fundargerð SSNV frá 12. janúar sl. 

Í fundargerð segir að SSNV vekur athygli á að meðalútsvar á landinu árið 2014 var kr. 417.035,- á íbúa. Meðalútsvarstekjur sveitarfélaga á starfssvæði SSNV, Húnavatnssýslum og Skagafirði, námu á sama tíma kr. 383.332,- á íbúa. Mismunurinn er kr. 33.703,-.

„Það er illskiljanlegt hvernig það getur talist sanngjarnt eða samræmst 8. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, þar sem skýrt kemur fram að hlutverk Jöfnunarsjóðs er að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga með framlögum úr sjóðnum, að sérstöku framlagi Jöfnunarsjóðs skuli eiga að ráðstafa þannig að þau sveitarfélög sem þegar hafa mestar tekjur fái bróðurpartinn af tekjum Jöfnunarsjóðs af sérstökum skatti á fjármálafyrirtæki samkvæmt lögum nr. 155/2010, með síðari breytingum,“ segir loks í fundargerð. 

Fleiri fréttir