Breytt fyrirkomulag styrkja 2012 og framlengdur umsóknarfrestur
Breyting verður á fyrirkomulagi á umsóknum og úthlutunum styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga árið 2012 þar sem Alþingi hættir úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna eins og áður hefur verið.
Fram kemur á vefsíðu Mennta- og menningarmálaráðuneytisins að Alþingi muni áfram ákvarða umfang fjárframlaga til einstakra málaflokka en úthlutun styrkja mun flytjast til ráðuneyta, lögbundinna sjóða, menningarráða landshluta eða annarra sem sjá um og bera ábyrgð á viðkomandi málaflokkum.
Ráðuneytin munu einungis úthluta styrkjum til verkefna sem falla undir málefnasvið þeirra. Því er umsækjendum bent á að mikilvægt er að kynna sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir. Úthlutað verður einu sinni á ári og eigi síðar en 31. janúar ár hvert.
Verkefni eftir ráðuneytum:
- Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
- Stuðningur við áhugahópa og faglegt starf
- Veittir eru styrkir til að styðja við aðila utan ríkisstofnana sem starfa á verkefnasviði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis og njóta ekki framlaga á fjárlögum.
- Velferðarráðuneyti
- Styrkir til félagasamtaka
- Veittir eru styrkir til félagasamtaka sem starfa á verkefnasviði ráðuneytisins og njóta ekki framlaga á fjárlögum.
- Verkefnastyrkir á sviði velferðarmála
- Veittir eru styrkir til félagasamtaka til að hrinda í framkvæmd verkefnum og aðgerðum sem falla að verkefnasviði ráðuneytisins og njóta ekki framlaga á fjárlögum.
- Umhverfisráðuneyti
- Verkefnastyrkir á sviði umhverfismála
- Veittir eru styrkir til faglegrar uppbyggingar á sviði umhverfismála með því að styrkja tiltekin verkefni. Einnig eru veittir styrkir sem stuðla að þátttöku í stefnumarkandi alþjóðlegum ráðstefnum og fundum um umhverfismál, einkum þeim sem ráðuneytið sjálft hefur aðkomu að. Ráðuneytið mun á árinu 2012 leggja áherslu á verkefni á sviði umhverfis- og náttúruverndar.
- Mennta- og menningarmálaráðuneyti
- Styrkir á sviði listgreina
- Veitt eru framlög til félagasamtaka og annarra aðila sem starfa á sviði lista og eru ekki aðilar að menningarsamningum né hafa aðgang að sjóðum.
- Styrkir á sviði menningararfs
- Veitt eru framlög til félagasamtaka og annarra aðila sem starfa að varðveislu menningarminja og eru ekki aðilar að menningarsamningum né hafa aðgang að sjóðum.
- Styrkir á sviði íþrótta- og æskulýðsmála
- Veitt eru framlög til félagasamtaka og annarra aðila sem starfa við íþrótta- og æskulýðsmál, skólabúðir o.fl., og hafa ekki aðgang að sjóðum á þessu sviði.
- Styrkir til uppbyggingar landsmótsstaða
- Veitt eru framlög til að styðja við uppbyggingu á landsmótssvæðum í samstarfi við sveitarfélög og fleiri aðila.
Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur og eyðublöð er að finna á vef viðkomandi ráðuneytis: hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti, hjá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, hjá umhverfisráðuneyti og hjávelferðarráðuneyti.
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 12. desember 2011 og skal þeim vera skilað undirrituðum til viðkomandi ráðuneytis fyrir kl. 16. mánudaginn 12. desember 2011.