Brjálað verklokaball á Skagaströnd

Í tilefni þess að verklok nálgast hjá GV-Gröfum og Sorphreinsun VH við lagningu hitaveitu á Skagaströnd ætla verktakarnir að bjóða öllum á ball sem dansskóm geta valdið. Það er hin velþekka hljómsveit Hvanndalsbræður sem verða á sviðinu í Kántrýbæ föstudaginn 13. september nk. og mun húsið verða opnað kl 23.00.

-Um leið og við þökkum íbúum á Skagaströnd kærlega fyrir gott samstarf í sumar vonum við að sem flestir muni mæta og eiga gleðistund með okkur og Hvanndalsbræðrum á góðu balli, segir á vef Skagastrandar.

Fleiri fréttir