Brú gaf sig undan flutningabíl

Skömmu fyrir hádegi í dag hrundi efri brúin yfir Vatnsdalsá í Austur-Húnavatnssýslu, skammt frá bænum Grímstungu. Flutningabíll með eftirvagni, sem var að flytja farm vegna vegaframkvæmda í dalnum, var rétt ókominn yfir brúna þegar hún gaf sig.

Að sögn lögreglunnar á Norðurlandi vestra er um rúmlega 60 ára gamla brú að ræða sem var orðin slitin og barns síns tíma, þó ekki væru á henni sérstakar þungatakmarkanir. Þegar Feykir ræddi við lögregluþjón á Blönduósi fyrir skemmstu var ekki ljóst hversu alvarlega meiðsli bílstjórans væru, en vinnufélagar hans komu honum undir læknishendur.

Brúin sem er fremst í Forsæludal, skammt frá bænum Grímstungu, er efri brúin af tveimur yfir Vatnsdalsá. Alla jafna er lítil umferð um hana og komast allir leiðar sinnar þrátt fyrir að hún sé nú með öllu ónothæf, en leiðir milli bæja sitt hvoru megin árinnar lengjast talsvert fyrir vikið. Þegar Feykir ræddi við lögreglu var unnið að því að koma bifreiðinni upp úr ánni en engar ákvarðanir höfðu verið teknar um viðgerðir eða endurnýjun á brúnni.

Fleiri fréttir