Brunaæfing á bökkum Blöndu
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
06.03.2014
kl. 08.50
Brunavarnir A-Hún. voru með æfingu sl. þriðjudag en þá var kveikt í húsinu að Blöndubyggð 13 á Blönduósi en það var einbýlishús með áföstu litlu hesthúsi. Slökkviliðið hófst handa við að kveikja í húsinu um kl. 18:00 en aðgerðum við húsið var lokið rétt fyrir miðnætti.
Samkvæmt frétt á Húnahorninu hefur staðið til að rífa húsið um nokkurn tíma en Blönduósbær keypti húsið árið 2011 í þeim tilgangi að það yrði síðan rifið. Það sem ekki brann verður fjarlægt á næstunni. Meðfylgjandi mynd er frá Róberti Daníel Jónssyni.