Brunavarnir A-Hún. fá nýjan björgunarbúnað

Brunavarnir A-Hún. fengu nýjan björgunarbúnað á dögunum til nota við störf sín. Hinn nýi björgunarbúnaður er klippibúnaður til björgunar úr bílflökum frá Holmatro og loftpúðar frá Vetter, sem einnig má nota við björgun úr bílum.

Loftpúðinn lyftir slökkviliðsbíl liðsins. Mynd: Húni.is

Samkvæmt frétt Húnahornsins samanstendur búnaðurinn af klippum, glennu, pedalaklippum, tjakk, dyraskó, tveimur dælum og tveimur loftpúðum sem annars vegar lyfta 20 tonnum og hins vegar 30 tonnum.

 

Fleiri fréttir