Brunavarnir A-Hún. kaupa nýjar björgunarklippur
Brunavarnir A-Hún. hafa fest kaup á björgunarklippum af Holmatro gerð að upphæð 3,2 milljónir króna. Þetta kom fram á fundi bæjarstjórnar Blönduósbæjar sem fór fram þann 25. október sl.
Samkvæmt fundargerð leitaði stjórn Brunavarna eftir styrkjum frá fyrirtækjum og stofnunum og hafa verið gefin vilyrði fyrir styrkjum að upphæð 2,0 m.kr. Klippurnar verða að öðru leiti fjármagnaðar með fjármunum sem ætlaðir voru til reksturs BAH árið 2012.
Á fundinum sagði Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri Blönduóss einnig frá því að stjórnin hefði ráðist í miklar hagræðingaraðgerðir í rekstri BAH. Þá hefði m.a. hefði nýr slökkviliðsstjóri, Jón Jóhannsson, verið ráðinn í hlutastarfandi starf, tveir aðstoðarslökkviliðsstjórar ráðnir og bakvaktakerfi slökkviliðsins gjörbreytt.
Framlög sveitarfélaganna sem reka BAH hafa lækkað á milli ára en búist er við því að þau fari úr 18,6 m.kr. fyrir árið 2011 í 17,0 m.kr. fyrir árið 2012. Þá er gert ráð fyrir því að enn meiri lækkun verði árið 2013. „Þrátt fyrir þennan niðurskurð er það mat bæjarstjóra að útkallsmáttur og gæði slökkviliðsins hafi ekki minnkað,“ segir loks í fundargerð.